Pyngjan

Pyngjan

<p>Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.&nbsp;</p>

Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless)

Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless)

28
febrúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæra Pyngjusamfélag! Allt tekur enda og þar er Pyngjan engin undantekning. Þetta hafa verið 3 ánægjuleg ár en nú, eftir 268 þætti, mætast þeir Addi og Iddi í hinsta sinn fyrir aftan míkrófóninn. Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir hlustunina í gegnum árin - heiðurinn er án nokkurs vafa okkar megin. Megi Pyngjur ykkar þyngjast á komandi tímum, fjárfestingar bera ávöxt og krónurnar vinna fyrir ykkur. Eitt er víst; Hin eina sanna Pyngja er nú tæmd. Guð blessi ykkur.

Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi

Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi

21
febrúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Þá er komið að síðasta ársreikningaþætti Pyngjunnar og því þriggja ára vegferð að ljúka. Það kom því ekkert annað til greina en að taka fyrir House of SKEL en svo þurftum við auðvitað að leita í ræturnar og gefa út þátt í anda upphaflegrar Pyngju sem innihélt tvo ársreikninga. Því ákváð Iddi að taka fyrir Lifandi vísindi sem er ansi skemmtilegur rekstur. Við viljum þakka öllum kærlega fyrir hlustunina á ársreikningaþættina okkar s.l. þrjú ár - it's been one hell of a ride! Lifandi vísindi - 8:05 SKEL - 45:15

Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið?

Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið?

14
febrúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!

Ársreikningar: Isavia

Ársreikningar: Isavia

7
febrúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur Pyngjunnar! Þá er komið að næstsíðasta ársreikningaþættinum okkar og það er enn eitt ríkisapparatið. Þó lítur út fyrir að vel sé haldið á spöðunum hjá Isavia, ólíkt mörgum öðrum eignum í eigu ríkisins. Saga er sjón ríkari!

Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye)

Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye)

31
janúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Já þið heyrðuð rétt, kæru vinir. Pyngjan er á leið í frí - langt frí! Við munum þó dæla í ykkur P-vítamíni út febrúar svo í guðanna bænum verið með okkur þangað til. Þáttur dagsins er einn af þessum klassísku, fréttir, tuð, umfjöllun og hagnýtur fróðleikur.

Ársreikningar: Brim

Ársreikningar: Brim

24
janúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Í dag tökum við fyrir sögu og rekstur Brims sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins. Iddi droppar alvöru value bombum hægri, vinstri, enda sérfræðingur í þessum efnum.

Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð

Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð

17
janúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.

Ársreikningar: Tandur

Ársreikningar: Tandur

10
janúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.

Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni

Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni

3
janúar 2025

Sendu okkur skilaboð! Það hlaut að koma að því! Geitin sjálf, Tóti Páls kíkti á okkur upp í Seðlabanka Kópavogs og settist á bakvið míkrófóninn. Í þættinum kynnumst við manninum og förum á hundavaði yfir sögu hlutabréfa á íslandi en sjálfur hefur Tóti séð tímanna tvenna í þeim efnum. Stórkostlegur þáttur sem, eins og svo oft áður, enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Gleðilegt nýtt ár, kæru kúrekar!

Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni

Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni

27
desember 2024

Sendu okkur skilaboð! Við fengum til okkar fyrrum hlutabréfamiðlarann Helga Frímannsson sem hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli fyrir greiningar á hlutabréfum á launþegaforritinu LinkedIn á árinu. Við fórum í manninn sem á langan feril að baki í heimi fjármála og auk þess gerðum upp árið 2024. Sannkölluð áramótasprengja fyrir ykkur, kæru kúrekar. Það verður bjart yfir 2025!