Norðfirðingur - Hlaðvarp

Norðfirðingur - Hlaðvarp

Norðfirðingur er hlaðvarpsþáttur sem er unnin í samvinnu við SÚN og Austurfrétt. Í hverjum þætti mætir Norðfirðingur í spjall og segir frá sínum heimum og geimum. Þáttastjórnandi er Daníel Geir Moritz.

22. þáttur - Guðni Finnsson

22. þáttur - Guðni Finnsson

13apr2023

Guðni Finnsson er viðmælandi í þessum þætti af Norðfirðingahlaðvarpinu. Tónlist hefur verið hluti af hans lífi í langan tíma og hefur hann afrekað margt og komið víða við. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.

21. þáttur - Smári Geirsson

21. þáttur - Smári Geirsson

8jan2023

Í þessum þætti er rætt við Smára Geirsson. Þættirnir hefðu eflaust getað verið 10 talsins og láðist m.a. að ræða þegar hann var sæmdur fálkaorðunni! En hvað sem því nú líður er hér víða komið við og ætti enginn Norðfirðingur að láta þennan þátt framhjá sér fara.

20. þáttur - Jón Hilmar

20. þáttur - Jón Hilmar

14ágú2022

Í þessum þætti er rætt við Jón Hilmar Kárason, gítarleikara og lífskúnster. Víða er komið við og sem fyrr er þátturinn unninn í samvinnu við SÚN.

19. þáttur - Elma Eysteinsdóttir

19. þáttur - Elma Eysteinsdóttir

6ágú2022

Kvenskörungurinn og blakdrottningin Hulda Elma Eysteinsdóttir er viðmælandi þáttarins að þessu sinni. Í dag býr Elma á Akureyri þar sem hún situr í bæjarstjórn. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.

18. Þáttur - Steinar Gunnarsson

18. Þáttur - Steinar Gunnarsson

4ágú2022

Í þessum þætti er rætt við Steinar Gunnarsson, lögreglu- og tónlistarmann. Steinar er hvað þekktastur fyrir afrek sín með SúEllen. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.

17. þáttur - Helga Steinsson

17. þáttur - Helga Steinsson

31maí2021

Í þessum þætti fer Helga Steinsson yfir skemmtilega tíma og ekki síst hvernig það var að flytja á Norðfjörð og gerast Norðfirðingur. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.

16. þáttur - Jón Björn

16. þáttur - Jón Björn

28maí2021

16. þáttur - Jón Björn by Norðfirðingur - Hlaðvarp

15. þáttur - Doddi Á Skorrastað

15. þáttur - Doddi Á Skorrastað

18des2020

Í þessum þætti er rætt við lífskúnsterinn Þórð Júlíusson, eða Dodda á Skorrastað. Doddi segir ýmsar sögur úr sveitinni og ræðir t.a.m. Kirkjumel og sleðaferðir. Þá eru sagðar sögur úr Verkmenntaskóla Austurlands og farið yfir ýmis svið. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.

14. þáttur - Jói Tryggva

14. þáttur - Jói Tryggva

13des2020

Í þessum þætti er rætt við Jóa Tryggva. Það er fjölmargt sem Jói hefur fengist við yfir ævina og er komið við uppi á Skarði, í Færeyjum, Barðsnesi og Norðfirði eins og hann leggur sig. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.

13. þáttur - Már Sveinsson

13. þáttur - Már Sveinsson

12des2020

Í þessum þætti er rætt við hinn eldspræka Má Sveinsson. Rottuleiðangrar, skemmtileg staðreynd um nýráðinn forstöðumann sundlaugarinnar, innbæingar og útbæingar, sendisveinn í hinni stóru Reykjavík, skot í Bakkabúð, heilsurækt o.fl. o.fl. Þátturinn er unninn í samvinnu við SÚN.