Korter í kosningar

RÚV Hlaðvörp

Alþingiskosningar eru handan við hornið og í ýmis horn að líta. Baldvin Þór Bergsson tekur saman það sem hæst ber í viku hverri fram að kosningum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Korter yfir kosningar

Korter yfir kosningar

7des2024

Hvernig ganga stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Hvernig flokkar eru þetta og hvað segja sósíalistar sem komust ekki á þing. Við fáum brot af þessu öllu í þætti dagsins auk þess sem við heyrum í Þorkeli Helgasyni um kosningakerfið og Ingibjörgu Þórðardóttur sem hefur meðal annars verið fréttastjóri á bæði BBC og CNN. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kosið í dag

Kosið í dag

30nóv2024

Kjördagur er runninn upp. Við leggjum talsmenn flokkanna til hliðar til að forðast áróður á kjörstað en leggjum þess í stað mat á stöðuna með brotum úr Morgunútvarpinu, Morgunvaktinni og Speglinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vika til kosninga

Vika til kosninga

23nóv2024

Í þættinum eru meðal annars spiluð brot úr Morgunvaktinni þar sem rætt var um heimilislækningar og verkefni næstu ríkisstjórnar. Viðar Halldórsson velti fyrir sér hvers vegna líðan fólks væri ekki meira áberandi í umræðunni og tveir fráfarandi þingmenn lýstu lífinu á þingi. Auk þess eru spiluð brot úr Forystusætinu og úr frambjóðendaspjalli Morgunútvarpsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Tvær vikur til kosninga

Tvær vikur til kosninga

16nóv2024

Hvað segja kjósendur í Norðausturkjördæmi um kosningarnar framundan? Við heyrum brot af hringferð RÚV um landið. Frambjóðendur kynntu flokkana í Morgunútvarpinu, forystufólk mætti í sjónvarpið og á Morgunvaktinni var meðal annars rætt um málefni eldri borgara. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þrjár vikur til kosninga

Þrjár vikur til kosninga

8nóv2024

Hvað fannst gestum Vikulokanna um kappræðurnar? Hvað sögðu Sigmundur Davíð og Inga Sæland í forystusætinu? Hvernig kýs unga fólkið? Allt þetta og meira til í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.