Konur í tækni

Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi

Konur í tækni er hlaðvarp Vertonet, samtaka kvenna í upplýsingatækni á Íslandi. Í þáttunum deilum við sögum af konum í tækni, ræðum starfsferilinn sem þær hafa byggt upp, áskoranir sem þær hafa staðið frammi fyrir og af hverju þær elska að vinna í kringum tækni. Þátturinn er ýmist á íslensku eða ensku eftir því hvaða tungumál gestur þáttarins talar. Umsjón hefur Hildur Óskarsdóttir. Konur í tækni (Women in Tech) is a podcast by Vertonet, a non-profit organization of women in IT in Iceland. The show is either in Icelandic or English, depending on the language the guest of the show prefers.

31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra

31. Auður Ösp Ólafsdóttir, markaðsklappstýra

5
desember 2024

Gestur okkar í þessum þætti er Auður Ösp Ólafsdóttir. Auður miðlar af miklum krafti óteljandi ráðum og reynslusögum til fylgjenda sinna á LinkedIn á sama tíma og hún byggir upp eigið fyrirtæki og stundar MBA nám í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur áralanga reynslu að vefstjórnun og efnissköpun og byggði m.a. upp ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavik. Hún starfar nú sem ráðgjafi þar sem hún hjálpar fyrirtækjum að fóta sig í stafrænum heimi. Í þættinum ræða Hildur og Auður meðal annars: Ævintýralegt ferðalag að stúdentsprófi Hvernig forvitni hefur leitt hana áfram í gegnum lífið Hvernig áhugi hennar á leitarvélabestun varð til þess að hún stofnaði ferðaþjónustufyrirtæki út frá bloggi Hvernig örlögin gripu í taumana og urðu til þess að hún stundar nú MBA nám í HR Þegar hún áttaði sig á því eftir að hafa dvalist á Spáni að hún vildi stjórna vinnutíma sínum sjálf Hvað hún tengdi ekki við að vera frumkvöðull (þó að hún sé það!) Praktísk ráð um hvernig hún notar gervigreind til að vinna mikið magn gagna og spara tíma! Mennskan vs. gervigreind og hvernig við dílum við meðalmennskumoð Impostor syndrome og geðheilbrigðismál Hvað LinkedIn er öflugur miðill til að byggja upp tengslanet Hvað það að ferðast ein til útlanda gefur henni orku Í þættinum minnist Auður á bæði gervigreindina Claude ásamt ChatGPT. Hún minnist einnig á Chrome viðbótina Glasp (ChatGPT and YouTube Summary) og Notion Auður mælir með bókinni Alchemy: The Dark Art and Curious Science of Creating Magic in Brands, Business, and Life eftir Rory Sutherland. Og hlaðvörpin Better Offline og Marketing Against the Grain ------------------------------------------------------------------- Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram ------------------------------------------------------------------- Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌

30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi

30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi

7
nóvember 2024

Gestur okkar í þessum þætti er Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi stjórnenda- og mannauðsráðgjafi. Ásamt því að kynnast Ásdísi, fræðumst við um átaksverkefnið og Playbook Vertonet, leiðarvísi að fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu á vinnustað sem nú er í undirbúningi og er hluti af stærra átaksverkefni um að auka nýliðun kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi. Playbook Vertonet verður ókeypis og galopið verkfæri til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum í upplýsingatækni að stíga markviss skref í átt að inngildandi vinnustaðamenningu. Í þættinum ræða Hildur og Ásdís meðal annars: Upplifun Ásdísar þegar hún starfaði sem mannauðsstjóri í tæknigeiranum - það vantar fólk! Hvað hlutfallslega fáar konur vinna í tæknistörfum á Íslandi Hvað Vertonet ætlar að gera til að hafa áhrif Átaksverkefnið hingað til og hvað búið er að gera Afurð í smíðum: Hvað er eiginlega Playbook Vertonet? Hvernig áhugasöm geta lagt hönd á plóg Hvað gerist 13. nóvember? Buildathon og dagskrá í streymi Hvernig verður hægt að nýta Playbook Vertonet til að auka inngildingu fyrir öll í upplýsingatækni Ásdís nefnir bæði hlaðvarp og bók í viðtalinu sem hún mælir með: Fixable (hlaðvarp) Likable Badass: How Women Get the Success They Deserve (bók) --------------------------------------------------------------- Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram --------------------------------------------------------------- Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar: Advania og Sýn

29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans

29. Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans

13
október 2024

Gestur okkar í þessum fyrsta þætti vetrarins er Valeria R. Alexandersdóttir, forstöðukona tækniþjónustu Ljósleiðarans. Valeria er reynslumikill stjórnandi í upplýsingatæknigeiranum með víðtæka starfsreynslu úr mismunandi atvinnugreinum. Áður en hún tók við núverandi starfi vann hún hjá fyrirtækjum eins og QuizUp, Nova, Icelandair og Advania. Hún er með BS gráðu í verkfræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík ásamt diploma í verkefnastjórnun. Valeria situr auk þess í stjórn SVEF og sinnir kennslu í HR. Í þættinum ræða Hildur og Valeria meðal annars: Æskuárin og flutninginn frá Sovétríkjunum til Seltjarnarness Menntaskólaárin og lífsbaráttuna sem tók yfirhöndina Frumgreinadeild í HR (nú Háskólagrunnur), þar sem hún fann áhugann sinn og lauk verkfræðinámi Skemmtilega reynslu hjá Nova á fyrstu árum fyrirtækisins Ævintýralegan vöxt QuizUp og lærdóminn sem hún og aðrir fengu Þátttökuna í uppbyggingu Digital Labs hjá Icelandair Árangursríkar breytingar hjá Advania og hvernig þær þróuðust Hvernig markþjálfunarnámið hefur nýst henni bæði sem stjórnanda og í eigin lífi Kennsluna í HR þar sem hún tengir saman tæknigeirann og viðskiptafræði Hversu nærandi það er að fara í göngutúra með hundinn í náttúrunni Í þættinum minnist Valeria á tvær bækur: The Wisedom of the Bullfrog: Leadership Made Simple (But Not Easy) eftir Admiral William H. McRaven You Do You: How to Be Who You Are to Get What You Want eftir Sarah Knight Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram --------------------------------------------------------------------------------------------------------- Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar: Advania og Sýn 🙌

Hvað er framundan hjá Vertonet?

Hvað er framundan hjá Vertonet?

23
júní 2024

Elísabet Ósk Stefánsdóttir er nýr formaður stjórnar Vertonet sem kosin var á aðalfundi félagsins sem haldinn var í maí. Í þættinum segir hún okkur bæði frá nýrri stjórn og sjálfri sér, ásamt því að við lítum um öxl yfir þá viðburði sem félagið hefur staðið fyrir í vetur. Við ræðum að auki spennuna fyrir haustinu og viðburða sem nýja stjórnin er byrjuð að huga að. Um leið og við þökkum ykkur fyrir samfylgdina í vetur kæru hlustendur tökum við okkur nú í sumarfrí en snúum aftur með þáttinn í haust ❤ Styrktaraðilar Konur í tækni eru Sýn, Geko og Advania og þökkum við þeim innilega fyrir stuðninginn 🙌

28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant

28. Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant

31
maí 2024

Our guest in this episode is Joice Tae Ozaki, VP of Product at Controlant. Joice was born in Japan but grew up in different countries including France, Brazil, and the United States. She has been working in tech for over 20 years, starting her career as a Web Designer, and eventually finding a deep love for UX and Product Management. Joice has a BFA from Virginia Commonwealth University and an MFA from the California Institute of the Arts. She is also the 2023 Icelandic Finalist in the Nordic Women in Tech Awards for Innovator of the Year category. In their discussion, Hildur and Joice cover a range of topics, including: The normalization of frequently switching schools and adapting to new countries How her passion for animation led her to study at the California Institute of the Arts Her career at Nickelodeon Her role in a startup company created by women to make games for women What brought her to Iceland and her initial job-seeking experiences here Her career trajectory at Controlant and the company's dynamic atmosphere The evolving role of a Product Manager and potential future developments in this role The significance of fostering an inclusive company culture to create better products How starting her day early with exercise helps her maintain focus and balance Apps, Podcasts and books that Joice recommends: Bearable (self care) app No stupid questions (podcast) Grit: Why passion and resilience are the secrets to success by Angela Duckworth (book) Books by Adam Grant (LinkedIn profile) The show is sponsored by: Sýn, Geko and Advania 🙌 Like what you heard and want to hear more? Follow the show on your favorite podcast platform to ensure you don't miss an episode. Follow Vertonet on social channels: LinkedIn Facebook Instagram Hosted by Hildur Óskarsdóttir

27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri

27. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, frumkvöðull og framkvæmdastjóri

29
apríl 2024

Gestur okkar að þessu sinni er Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Oktavía er frumkvöðull, framkvæmdastjóri og reyndur ráðgjafi á sviði heildræns nets- og upplýsingaöryggis. Hán hefur þróað og skapað verkefni og fyrirtæki sem tengjast öryggi, menningu og tækni um allan heim. Oktavía var meðstofnandi þankatanksins future404 ehf. og situr í ráðgjafahóp Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega stjórnsýslu internetsins. Í þættinum ræða Hildur og Oktavía meðal annars: Uppvaxtarárin í Danmörku Menntaskólaárið í Bandaríkjunum þar sem hán kynntist tölvum og möguleikum tækninnar Mikilvægi þess að vinna með höndunum og skapa til jafnvægis við nám sem leiddi hán að vinna hjá bifreiðaverkstæði með menntaskóla Árin í CBS í Kaupmannahöfn og starfið hjá Telia í Danmörku og lærdóminn sem fylgdi verkefnunum þar Meistaranámið sem endaði með tvöfaldri meistaragráðu frá háskólanum í Hróarskeldu Starfið fyrir International Media Support sem leiddi hán um allan heim og oft í hættulegar aðstæður Frumkvöðlaverkefni fjármagnað af utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna um heildrænt net- og upplýsingaöryggi Pólitíkina og setu á Alþingi Íslendinga eftir 30 ára búsetu erlendis Hlutverk háns í ráðgjafahópi Sameinuðu þjóðanna um málefni internetsins og undirbúning stórrar ráðstefnu um málefnið sem fer fram í Sádi-Arabíu Bíladelluna og hvað það er ekkert betra en að fara í sund og hvað það er líka gott að gera bara alls ekki neitt ---------------------------------------------------------------- Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram ---------------------------------------------------------------- Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar eru Sýn, Advania og Geko

26. Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet

26. Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet

26
mars 2024

Gestur okkar að þessu sinni er Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet sem gengur út á að auka hlut kvenna í upplýsingatækni. Lena Dögg mun leiða loka fasa átaksverkefnisins, sem felur í sér að koma skilgreindum aðgerðum í framkvæmd í samstarfi við styrktar- og stuðningsaðila. Lena Dögg hefur margra ára reynslu af verkefnastjórnun og er menntuð sem kennari, náms- og starfsráðgjafi og tölvunarfræðingur Í þættinum ræða Hildur og Lena Dögg meðal annars: Fjölbreytilegt námsval á menntaskólaárunum sem leiddi hana að textílkennaranámi í Kennaraháskólanum Hvað hún brennur fyrir að kenna og deila með öðrum Skortur á dagvistun árið 2006 sem varð til þess að hún fór í nám í náms- og starfsráðgjöf Starfið hjá Hljóðbókasafninu sem gaf henni möguleika á að vaxa og bæta við sig tækniþekkingu Hvernig hún fór „óvart“ í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavik Hvað varð til þess að hún fór að starfa sem hugbúnaðarprófari og hvað felst í því starfi Þegar hún kynntist konum sem störfuðu hjá Crayon á stofnfundi Vertonet árið 2018 sem varð til þess að hún sótti síðar um starf hjá fyrirtækinu Hvað verkefnastjórastaðan hjá Vertonet kveikti neista sem hún gat ekki horft framhjá Markmiðið að hlusta á a.m.k. 52 bækur á ári og hvað sunnudagsbollinn er mikilvægur og setur tóninn fyrir komandi viku Accelerate. Building and Scaling High Performing Technology Organizations The Unicorn Project. A Novel About Developers, Digital Disruption, and Thriving in the Age of Data Investments Unlimited. A Novel About DevOps, Security, Audit Compliance, and Thriving in the Digital Age ---------------------------------------------------------------- Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram ---------------------------------------------------------------- Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar: Advania, Sýn og Geko 🙌

25. Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania

25. Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania

29
febrúar 2024

Gestur okkar að þessu sinni er Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania en Helga Björk tók þátt í átakinu „Konur í kerfisstjórnun“ og hefur verið áberandi í umræðunni um starfið og frábær fyrirmynd. Hún hóf starfsferilinn hjá Símanum árið 2007 þar sem hún starfaði við að veita tæknilega aðstoð til viðskiptavina og varð síðar tæknimaður í vettvangsþjónustu fyrirtækjasviðs og svo hópstjóri á upplýsinga- og tæknisviði. Eftir flutning á sviðinu yfir til Sensa árið 2014 hóf hún þar störf sem kerfisstjóri. Frá árinu 2017 hefur hún unnið hjá Advania sem hópstjóri og kerfisstjóri og nú sem deildarstjóri. Í þættinum ræða Hildur og Helga Björk meðal annars: Áhuga hennar á tölvum sem vaknaði þegar hún var fjögurra ára gömul Þegar hún bjó til sína fyrstu heimasíðu um 10 ára aldur Hvað notkun IRCsins varð til þess að hún fann fólk með sömu áhugamál Hvað spilun tölvuleikja hefur alltaf verið stór hluti af hennar lífi Hvað varð til þess að hún fór á hárgreiðslubraut í Iðnskólanum Hvað skortur á kvenkyns fyrirmyndum varð til þess að henni datt ekki í hug að hún gæti lært eitthvað tengt tölvum Hvað tækifæri sem hún fékk hjá Símanum varð til þess að hún fann sína réttu hillu og fékk áhuga á rekstri tölvukerfa og fór í gegnum kerfisstjórnunarnám Tækifærin sem hún hefur fengið hjá Advania Hvað nám í kerfisstjórnun hentar fólki með fjölbreyttan bakgrunn Ástríðu hennar á ferðlögum sem hefur orðið til þess að hún hefur komið til yfir 50 landa ------------------------------------------------------------------------ Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram ------------------------------------------------------------------------ Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar eru Advania, Sýn og Geko

24. Anna Helga Jónsdóttir, dósent við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands

24. Anna Helga Jónsdóttir, dósent við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands

27
janúar 2024

Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Helgu Jónsdóttur dósent við Háskóla Íslands. Anna Helga lauk BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2003, meistaraprófi í hagnýtri stærðfræði frá Danska tækniháskólanum (DTU) í Kaupmannahöfn 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Anna Helga var ráðin dósent í tölfræði við Háskóla Íslands 2018. Í þættinum ræða Hildur og Anna Helga meðal annars: Hvernig stærðfræði vakti áhuga hennar strax á grunnskólaárunum Hvernig skiptinám til DTU í Kaupmannahöfn leiddi hana á braut tölfræðinnar og meistaranáms í hagnýttri stærðfræði og síðar kennslu við skólann Hvernig doktorsnám sem var blanda af tölfræði og kennslu reyndist draumastaðan Þróun og prófun kennslukerfisins tutor-web í stærðfræði og tölfræði Um rafmyntina SmileyCoin sem nemendur fá sem umbun inni í kennslukerfinu Þróun verkefnisins Education in a suitcase í Kenía þar sem kennslukerfið er notað og árangurinn sem hefur náðst og áhrifin sem það hefur haft á samfélagið Hvernig bálkakeðjutæknin er að greiða götu verkefnisins Um Stelpur diffra námsbúðirnar og mikilvægi þess að sýna fyrirmyndir Þá gríðarlegu þróun sem er í gagnavísindum og gevigreind Hvað það er dásamlegt að stunda hot yoga ⁠Þátturinn er í boði Sýn, Advania og Geko Bækur sem Anna Helga minnist á í viðtalinu: The Alignment Problem: How Can Machines Learn Human Values? Superintelligence: Paths, Dangers, Strategies ------------------------------------------------------------------------ Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu! Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram ------------------------------------------------------------------------ Um hlaðvarpið Umsjón fyrir hönd Vertonet hefur Hildur Óskarsdóttir

23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar

23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar

1
desember 2023

Gestur okkar að þessu sinni er Linda Heimisdóttir. Linda er með MA og doktorsgráðu í málvísindum frá Cornell háskóla. Linda hefur áralanga reynslu úr máltæknigeiranum en áður en hún tók við núverandi starfi, starfaði hún hjá alþjóðlega fyrirtækinu Appen, sem sérhæfir sig í söfnun og merkingu gagna fyrir máltækni og gervigreind. Linda gekk til liðs við Miðeind, sem er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði máltækni og gervigreindar, í byrjun árs 2023, þá sem rekstrarstjóri fyrirtækisins en hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra síðan í júní. Í þættinum ræða Hildur og Linda meðal annars: Hvernig lífið leiddi hana áfram í málvísindin og síðar í máltækni Námsárin í Cornell háskólanum í New York fylki Störfin hjá Appen þar sem hún vann m.a. verkefni fyrir Microsoft Ákvörðunina um að flytja til Íslands, til að starfa við íslenska máltækni, eftir 15 ára búsetu í Bandaríkjunum Byltinguna sem hefur orðið í máltækni með tilkomu Chat GPT Gefandi samstarf Miðeindar við Open AI Styrkinn frá Evrópusambandinu til gerðar gervigreindarmállíkans þar sem evrópsk gildi eru höfð að leiðarljósi Hvað morgunhlaup og sund eru endurnærandi á milli þess sem hún kennir sjálfri sér að spila á píanó Linda minnist á hlaðvörp sem hún mælir með: Hard Fork This American Life Radio Lab Explo Word Game er appið frá Miðeind sem Hildur minnist á að nota Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar þáttarins eru Sýn og Geko