Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafsson

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason

28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason

17
apríl

Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari.  Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn.  Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt  og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður.   Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul.  Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.

27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson

27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson

9
apríl

Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar.  Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns.  Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gamall.  Jóhann byrjaði í MH en ætlaði að fresta náminu um einn vetur því það var svo mikið að gera í spileríinu.  Stúdentsprófið bíður enn og listinn yfir tónlistarfólkið og hljómsveitirnar sem hann hefur unnið með er ógnarlangur og glæsilegur.

26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa)

26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa)

27
mars

Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun.  Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og brilleraði næstu árin í hverju hlutverkinu á fætur öðru.   Frammistaða hennar í söngleikjum eins og Mary Poppins, Kysstu mig Kata og Mamma Mia er eftirminnileg þeim sem sáu . Hansa er með burtfararpróf bæði í klassíkum píanóleik og söng og telur tónlistina æðsta allra lista.  Svo vippaði hún sér í MBA nám líka - svo sannarlega sterkur námsmaður.  Hún greindist með MS sjúkdóminn fyrir tæpum þremur árum en kvartar ekki og lætur hvergi deigan síga.

25.þáttur: Róbert Marshall

25.þáttur: Róbert Marshall

17
mars

Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega.  Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur ekki rölt upp á.  Einnig sinnir Róbert tónlistarsköpun þegar tími vinnst til og er m.a. forsöngvari og helsti lagahöfundur hljómsveit sem kallast Hvítá.  Einu sinni talaði Leonard Cohen beint til hans á tónleikum og í kjölfarið tók Róbert sína bestu ákvörðun.

24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson

24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson

5
mars

Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson.  Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast úr Versló vegna splattermyndar sem sýnd var í skólanum. Sveinn er kvæntur úkraínskri konu og hefur farið yfir 120 sinnum til heimalands hennar;  hinnar stríðshrjáðu Úkraínu sem honum þykir svo vænt um.

23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir

23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir

24
febrúar

Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins.   Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði.  Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í leiksýningunni Á rauðu ljósi sem hún ákvað að skrifa og setja upp því hún átti ekki fyrir jólagjöfum.  Þetta vatt upp á sig og sýningarnar eru orðnar á annað hundrað.  Þessa dagana stúderar Kristín sálfræði þegar hún er ekki að brillera á sviði eða fyrir framan myndavélarnar.

22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir

22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir

18
febrúar

Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona.  Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir stúdentspróf heimsótti hún bæði Kúbu og Kína.  Einnig hefur hún nokkrum sinnum komið til Namibíu og Palestínu sem dæmi.  Mist er mannfræðingur að mennt og hefur dálæti á köttum.

21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson

21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson

11
febrúar

Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall.  Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér.  Björgvin hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum og m.a. gefið út tvær bækur sem vöktu mikla athygli.  Hann er óþreytandi við að hjálpa öðrum og notar eigin lífsreynslu í því skyni.

20.þáttur: Máni Svavarsson

20.þáttur: Máni Svavarsson

6
febrúar

Hróður Mána hefur borist víða enda hefur tónlist hans í þáttunum um Latabæ heyrst í velflestum löndum þar sem rafmagn er að finna.  Foreldrar hans, þau Svavar Gests og Elly Vilhjálms, löttu hann frekar en hvöttu þegar kom að tónlistinni en á endanum lét Máni hjartað ráða.  Tengsl hans við AHA og meðlimi hennar koma við sögu rétt eins og aflitað hár og frekar löng skóladvöl í Versló.

19.þáttur: Ellen Kristjánsdóttir

19.þáttur: Ellen Kristjánsdóttir

30
janúar

Ellen fæddist í Bandaríkjunum og talaði ekki stakt orð í íslensku þegar hún fluttist til Íslands.  Hún hefur þurft að glíma við ansi mörg áföll á lífsleiðinni og meðal annars varð eitt slíkt uppsprettan að lagi sem hún syngur reglulega til að hughreysta annað fólk.  Ellen er ein ástsælasta söngkona landsins og vakti fyrst athygli með Ljósunum í bænum og síðan Mannakornum.  Hún brennur fyrir réttlæti og velferð þeirra sem minna mega sín og hefur aldrei látið sitt eftir liggja í þeim efnum.