Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

Tónlist

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri. Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100 tónleika á ári hverju af ýmsum toga og tekur á móti breiðum hópi áheyrenda. Leyfðu þér að hrífast með og kynntu þér tónleika sveitarinnar á vefnum sinfonia.is og á samfélagsmiðlum.

Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur

Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur

19maí

Undir lok maí, nánar tiltekið 29. og 30. maí, flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands áttundu sinfóníu Gustavs Mahler en þetta verður í fyrsta sinn sem þetta stórvirki verður flutt á Íslandi. Hljómsveitin verður með stærsta móti, myndarlegur kór á sviðinu ásamt barnakór og einsöngvararnir verða átta talsins. Það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi SÍ, sem stjórnar flutningi en tónleikarnir eru lokatónleikar hennar í því hlutverki. Til að hita upp fyrir þessa stórtónleika tökum við Svanhildi Óskarsdóttur tali en hún mun segja gestum frá á sérstakri tónleikakynningu sem fer fram kl. 18 þann 29. maí í Norðurljósum. Það er Vinafélag SÍ sem stendur fyrir kynningunni. Hér í Hljómkviðunni er það Guðni Tómasson sem ræðir við Svanhildi um verkið. Missið ekki af Mahler 8 undir lok maí hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Seinni tónleikarnir eru hluti af Listahátíð í Reykjavík sem hefst þann daginn.

Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime

Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime

20feb

Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime. Platan kemur út 27. febrúar næstkomandi hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus og inniheldur þrjú verk eftir Daníel í flutningi Sinfóníuhljómveitar Íslands undir stjórn Daníels sjálfs.

Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan

Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan

26jan

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum í ár, 29. janúar næstkomandi, hljómar básúnukonsert eftir skoska tónskáldið Sir James MacMillan sem jafnframt stjórnar tónleikunum. Einleikari í konsertinum er Jón Arnar Einarsson, leiðari básúnudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands og hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands verið þátttakandi á hátíðinni frá upphafi. Myrkir músíkdagar standa yfir dagana 29. janúar - 1. febrúar 2026.

Mugison tekinn tali

Mugison tekinn tali

28okt2025

Guðni Tómasson ræðir við tónlistarmanninn Mugison í tilefni tónleika hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 6. & 7. nóvember næstkomandi.

Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25

Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25

4apr2025

Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónsöngvari er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á yfirstandandi tónlistarári. Hér ræðir Guðni Tómasson framkvæmdastjóri SÍ við Ólaf um líf í söng.

Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár

Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár

28mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Guðnýju Guðmundsdóttur sem var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið.

Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár

Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár

21mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Joe Ognibene hornleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leiddi horndeildina um árabil.

Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár

Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár

13mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason  ræðir við Helgu Hauksdóttur sem var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og síðar tónleikastjóri hennar.

Eggert Pálsson – Sinfónían í 75 ár

Eggert Pálsson – Sinfónían í 75 ár

3mar2025

Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Eggert Pálsson slagverksleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands um ýmislegt úr sögu hennar.

Einar Jóhannesson – Sinfónían í 75 ár

Einar Jóhannesson – Sinfónían í 75 ár

28feb2025

Í þessum þætti Hljómkviðunnar ræða tveir klarinettuleikarar saman – Einar Jóhannesson sem var fyrsti klarinettuleikari sveitarinnar um árabil og Sigurður Ingvi Snorrason sem ræðir við nokkra hljóðfæraleikara sveitarinnar í tilefni 75 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Þér gæti líka líkað...