Gullkastið
Kop.is
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Gullkastið – Arne Slot Rekinn
Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart. Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hluti með Bournemouth og var auðvitað ráðin þangað af Richard Hughes. Liverpool hefur ekki skipt oft um stjóra í sögulegu samhengi og þegar það gerist er jafnan tilefni fyrir Neyðarþátt. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur
Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki. Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Lokavikan
Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki. Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrögð leikmanna Liverpool við henni, það er augljóslega ekki allt með felldu innan herbúða félagsins. Spáðum einnig í helstu fréttum vikunnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Erfiður Heimavöllur?
Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Stórleikur um helgina
Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace. Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton
Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina. Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar. Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á Facebook síðu Kop.is Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Er Ennþá Séns?
Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum. Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Allt Undir
Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Sumarið Er Tíminn
Hvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á útivelli í FA Cup. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Gullkastið – Salah Kveður í Sumar
Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s Liverpool er annars í frjálsu falli í deildinni og Meistaradeildarsæti ólíklegt eins og liðið er að spila. Framundan eru fjórir leikir í þremur keppnum sem gætu haft töluvert að segja um framhaldið. Staða Arne Slot er vægast sagt ekki góð, skoðum aðeins hvaða nöfn við gætum verið að horfa sig í sumar (eða fyrr) geri Liverpool breytingar á toppnum sem verða að teljast ansi líklegar (nauðsynlegar) eins og staðan er núna. Skoðum leiki vikunnar, góðan sigur á Gala og ömurlegt tap í kjölfarið gegn Brighton. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf