Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já
Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um: Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræður mikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virk mótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefnu aðildarríkja eldri og nýrri viðræðuramma samninganefndir Íslands og samráð innanlands þjóðaratkvæðagreiðslu og stjórnarskrárbreytingar Fullgildingu samnings á Alþingi og gildistöku kosningar til Evrópuþingsins Hægt er að lesa fréttaskýringuna á vef Gímaldsins, skoða skýringarmyndir sem henni fylgja og lesa tengt efni. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þessi lestur er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB
Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður. Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tungu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður við ESB. Það helsta úr viðtalinu: Gangi ríki í ESB verður tungumál þess sjálfkrafa eitt af opinberum málum sambandsins. Hver borgari aðildarríkis á rétt á að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin móðurmáli og fá öll lög og reglugerðir á sínu tungumáli. Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa ekki fengið hljómgrunn. Hvert ríki hefur neitunarvald og „það vill enginn fórna sínu tungumáli". Þegar síðustu aðildarviðræður fóru fram var túlkanám við Háskóla Íslands eflt fyrir tilstilli ESB. Að mati Gauta steðja meiri ógnir að íslenskunni innanlands og frá bandarískum tæknirisum, en nokkurn tíma frá Brussel. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust? Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands? Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum? Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá? Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að stunda hvalveiðar? Af hverju mega útlendingar koma nálagt orkufrekum iðnaði en ekki sjávarútvegi? Er Evrópusambanið eins og Framsókn? Geta hagsmunir bænda og neytenda farið saman? Af hverju er lega Íslands mikilvæg fyrir Evrópu og Bandaríkin? Af hverju er mikilvægt fyrir efasemdafólk að segja já í haust? Textaútgáfa viðtalsins er aðgengileg á vef Gímaldsins. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB
Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu. Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdastjóra Evrópustrauma. Það helsta úr viðtalinu: Skýrslan skoðar þrjú meginsvið: tolla, gjaldmiðil og regluumhverfi og skoðar hvað breytist fyrir íslensk fyrirtæki við ESB-aðild Ísland er í dag með 0% tolla á flestar vörur. Við aðild tækum við upp ytri tolla ESB sem eru hærri á ýmsum vöruflokkum Stærsta tollbreytingin gagnvart þriðju ríkjum varðar Kína. Þar eru tollar ESB hærri en núverandi íslenskir tollar Inni í tollabandalaginu sparast umsýsla og tollskýrslugerð, jafnvel þó tollar séu 0% nú kostar umsýslan sitt Vextir á fyrirtækjalánum eru yfir 10% á Íslandi en 3–6% í ESB Upptaka evru tekur langan tíma, þjóðirnar hafa tekið þrjú til nítján ár frá inngöngu í ESB þar til evra var tekin upp Verðstöðugleiki til lengri tíma yrði betur tryggður með evru en það sem þarf að breytast er hjá okkur, ekki hjá Brussel Netverslun frá ESB-löndum yrði mun auðveldari fyrir neytendur og minni hætta á tvísköttun Breytingarnar yrðu mest fyrir landbúnaðinn, þar myndi samkeppnisumhverfið breytast verulega en ekki er rýnt sérstaklega í þau mál frá sjónarhóli framleiðenda Höfundur telur vanta fleiri greiningar, einkum á áhrifum á landbúnað og einnig samanburð við önnur ríki sem gengið hafa í ESB Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Stóru samtökin þegja: ASÍ og SA munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu
Stór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Sólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍ Félag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðu Íslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til aðildar kæmi og gæti styrkt stöðu sína, líkt og írskan gerði Fyrirspurnir og erindi til Brussel yrði hægt að senda á íslensku og þeim yrði svarað á íslensku Sjávarútvegurinn og ólík afstaða útgerðarmanna til ESB Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild
„Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða fyrir íslenskan sjávarútveg og hvers vegna honum finnst full ástæða til að láta reyna á aðildarviðræður. Viðhorf útgerðarmanna til ESB Sjávarútvegsstefna ESB og stefnuleysi Íslands Önnur aðildarríki eiga auðlindir Sérlausnir fínar en óþarfar Tækifærin og hætturnar Áhugi erlendra fjárfesta ofmetinn Þunglamalegt Brussel eða hringlandaháttur Íslands Reynslan af embættismönnum í Brussel Þjóðir með sérþekkingu hafa áhrif í Brussel Textaútgáfu viðtalsins má finna á vef Gímaldins. Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir
Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök. Þáttastjórnandi er Eyrún Magnúsdóttir. Meðal þess sem kemur fram: Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og byggðu upp traust þvert á flokkslínur Þegar efnahagshrunið skall á 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar slæm. Meirihluti og minnihluti unnu náið saman að lausn mála og traust á borgarstjórn rauk upp í kjölfarið Þær áttu gott samstarf og sameinuðust um breiðar línur: engar skattahækkanir, enginn niðurskurður á grunnþjónustu, engar uppsagnir starfsmanna Á árunum 2006-2010 myndaðist grunnur fyrir sameiginlega sýn á skipulag borgarinnar, þvert á flokka Konur í stjórnmálum fá harðari gagnrýni og endast að meðaltali eitt kjörtímabil á meðan karlar endast þrjú Nútíminn gerir stöðu kvenna enn erfiðari: samfélagsmiðlar verðlauna hraða og gífuryrði frekar en yfirvegun og málefnaleg rök Þær hafa áhyggjur af bakslagi í jafnréttismálum „Bakslagið er að þurfa að útskýra hluti sem við héldum að við værum komin með. Það er bakslagið." Réttur kvenna yfir eigin líkama eigi að vera í stjórnarskrá: „Það er nákvæmlega þetta sem er fyrst sótt að þegar bakslag kemur" Þær kalla eftir umræðu án upphrópana í Evrópumálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðar telja þær þó að hagsmunum Íslands sé betur borgið í EES en ESB Það er skortur á vinstri sjónarmiðum á Alþingi, segir Hanna Birna. Pólitíkin fer aldrei úr þeim: Svandís fylgist með óundirbúnum fyrirspurnatímum og Hanna Birna horfir stundum á borgarstjórnarfundi í beinni Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Sirkabát #17: Dýrtíð á Íslandi
Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá alþjóðlegum samanburði. Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson sjá um þáttinn Viðmælandi er Gylfi Magnússon prófessor Gímaldið gefur út Sirkabát. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Áhrif ESB-aðildar fyrir budduna og bókhaldið
Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um: Aukin viðskipti og umsvif Breytingar á verðlagi Lærra matvöruverð Betri lánakjör Breytta eftirspurn eftir vinnuafli Breytt landslag í hagstjórn Ýmis áhrif fyrir lífeyrissjóði. Umsjón með þættinum hafa Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir. Ítarleg umfjöllun fylgir þættinum á vef Gímaldsins. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Gímaldið kíkir í pakkann: Samningsmarkmið utanríkismálanefndar
Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra. Meðal umræðuefna í þættinum: Dramatískar lýsingar í umsögnum fyrrverandi stjórnmálamanna Áhersla á sérbókun um yfirráð yfir auðlindum Sérlausn um séríslenskt fiskveiðistjórnsvæði Heimskautalandbúnaður og landbúnaðarstyrkir Miklir fjármunir frá Brussel til landsbyggðar Undanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngur Ísland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum Ítarlegri umfjöllun er um efni þáttarins á vef Gímaldsins. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.


