Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Brotkast ehf.

Málefni

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Engin fjölskylda með alkahólisma sem er ekki meðvirk | Fullorðins | S03E12

Engin fjölskylda með alkahólisma sem er ekki meðvirk | Fullorðins | S03E12

22
apríl

Bjarki Þór Pálsson er atvinnumaður í MMA og hefur unnið allnokkur verðlaun sem slíkur en hann stofnaði Reykjavík MMA. Hann segir okkur frá æskunni, lífinu hingað til og þeim áskorunum sem hann hefur þurft að takast á við.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norrænir bláðasnápar með íslenskum aktívistum | Harmageddon | S04E15

Norrænir bláðasnápar með íslenskum aktívistum | Harmageddon | S04E15

21
apríl

Sjálfsmark vikunnar var skorað af stórblaðinu Berlingske sem skrifaði mikla fréttaskýringu um spillingu í íslenskum sjávarútvegi með góðri aðstoð íslenskra aðgerðarsinna. Við fjöllum einnig um nornabrennu Snorra mássonar og ríkissaksóknara sem vill krossfesta lögreglumenn fyrir að sinna vinnu sinni. Þá förum við einnig yfir eitt umtalaðasta viðtal ársins við tónlistarmanninn Ingó veðurguð en það er eitthvað sem engin má láta fram hjá sér fara.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Uppgjör Ingós veðurguðs | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E23

Uppgjör Ingós veðurguðs | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E23

21
apríl

Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Ingó var á hátindi vinsælda sinna þegar íslenskt samfélag fór gjörsamlega af hjörunum í hinni svokölluðu MeToo byltingu. Hann varð fyrir markvissum árásum aðgerðasinna sem vildu hafa af honum lífsviðurværið og koma í veg fyrir að hann gæti unnið fyrir sér og sinni fjölskyldu. Ingó hefur aldrei stigið fram til að ræða þessi mál opinberlega en nú hefur hann ákveðið að segja sína sögu í eitt skipti fyrir öll.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins | Hluthafaspjallið | S03E13 | Þátturinn í heild sinni

Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins | Hluthafaspjallið | S03E13 | Þátturinn í heild sinni

20
apríl

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í efnahags- og viðskiptalífið en því miður eru fá merki að sjá um að stjórnvöld séu að ná tökum á verðbólgu. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans er gert ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 4,8 prósent í ár og að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á þessu ári. Um leið hefur viðræðum um sameiningu Kviku og Arion banka verið slitið en Samkeppniseftirlitið, sem þriðji partner í viðskiptunum, hefur í raun komið í veg fyrir sameininguna. Ritstjórarnir kalla eftir skýringum Samkeppniseftirlitsins.Í seinni hluta þáttarins mætti Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags, en félagið á nánast einn fermeter fyrir hvern Íslending. Félagið hélt aðalfund í vikunni og hefur hækkað arðgreiðslur frá fyrra ári um 10%. Hreiðar Már segir að félagið eigi að vera trygg fjárfesting fyrir ömmu og afa sem vilji njóta öruggrar ávöxtunar í ellinni. Eigendastefna Eikar hefur skýrst undir stjórn Hreiðars og félagið fjárfestir í stórum eignum sem henta atvinnulífinu. Ef þú ert að selja fimm milljarða eign snýrðu þér til Eikar.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Bjórkast #34 - Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson

Bjórkast #34 - Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson

19
apríl

Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson ræða málin.

Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins | Hluthafaspjallið | S03E13

Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins | Hluthafaspjallið | S03E13

17
apríl

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í efnahags- og viðskiptalífið en því miður eru fá merki að sjá um að stjórnvöld séu að ná tökum á verðbólgu. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans er gert ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 4,8 prósent í ár og að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á þessu ári. Um leið hefur viðræðum um sameiningu Kviku og Arion banka verið slitið en Samkeppniseftirlitið, sem þriðji partner í viðskiptunum, hefur í raun komið í veg fyrir sameininguna. Ritstjórarnir kalla eftir skýringum Samkeppniseftirlitsins.Í seinni hluta þáttarins mætti Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags, en félagið á nánast einn fermeter fyrir hvern Íslending. Félagið hélt aðalfund í vikunni og hefur hækkað arðgreiðslur frá fyrra ári um 10%. Hreiðar Már segir að félagið eigi að vera trygg fjárfesting fyrir ömmu og afa sem vilji njóta öruggrar ávöxtunar í ellinni. Eigendastefna Eikar hefur skýrst undir stjórn Hreiðars og félagið fjárfestir í stórum eignum sem henta atvinnulífinu. Ef þú ert að selja fimm milljarða eign snýrðu þér til Eikar. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Nauðsynlegt að búa til hvata til barneigna | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E22

Nauðsynlegt að búa til hvata til barneigna | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E22

17
apríl

Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er nú kominn í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni og segir tíma til kominn að vinda þar ofan af rugli síðustu 30 ára. Brynjar segir nauðsynlegt að taka upp alla samninga er varða Borgarlínuna og endurskoða alla samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins. Hann vill til dæmis að ráðist verði í gerð mislægra gatnamóta á horni Bústaðarvegs og Reykjanesbrautar strax eftir kosningar. Þá vill hann einnig að dagvistunarmál verði gerð meira frjáls og að fleiri aðilum en borginni verði treyst fyrir ummönum barna til þriggja ára aldurs. Brynjar segir mikilvægt að þessi mál séu í lagi til þess að fólk treysti sér til að eignast fleiri börn sem sé þjóðfélaginu lífsnauðsynlegt.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Ann Marie Smith, Irish freedom advocate | Arnar Þór | S03E08 | Full episode

Ann Marie Smith, Irish freedom advocate | Arnar Þór | S03E08 | Full episode

16
apríl

What is really going on in Ireland now? Ann Marie Smith traces the roots of the unrest brewing in her native country to explain where things are headed. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hvar er stóra planið? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E21

Hvar er stóra planið? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E21

15
apríl

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Við spyrjum hana út í stóra planið sem allir eru að bíða eftir, hvers vegna við erum að tala um Evrópusambandsaðild núna þegar hún sagði það mál ekki vera á dagskrá fyrir síðustu kosningar og afhverju við erum ekki að styrkja samband okkar við Bandaríkin á þessum víðsjárverðu tímum? Þá spyrjum við að sjálfsögðu um skatta- og gjaldahækkanir ríkisins, verðbólgu og vexti. Getur Ísland ekki náð stjórn á sínum eigin efnahagsmálum? Vill Kristrún afnema verðtryggingu eða telur hún evruna vera lausn allra okkar vandamála? Ekki missa af þessu mikilvæga viðtali á Brotkast.isFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

ESB spurningin leiðandi og byggð á umdeildum forsendum | Harmageddon | S04E14

ESB spurningin leiðandi og byggð á umdeildum forsendum | Harmageddon | S04E14

14
apríl

Þjóðaratkvæðagreiðslan vegna ESB umsóknarinnar virðist komin í uppnám þar sem landskjörstjórn gerir nokkuð alvarlegar athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem þar verður lögð fyrir kjósendur. Hún er sögð fela í sér umdeildar forsendur og sé því í eðli sínu leiðandi. Þetta hafa gagnrýnendur sagt frá fyrsta degi en ríkisstjórnin hefur ekki viljað taka neitt mark á þeim röddum. Þá á ríkisstjórnin alveg eftir að gefa upp hvort hún sé samþykk því að íslenska stjórnkerfið hefji það aðlögunarferli sem svokallaðar aðildarviðræður fela í sér. Nú kemur betur og betur í ljós að ESB vegferð Valkyrjanna er ekki alveg jafn þaulhugsuð og gefið hefur verið til kynna.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Þér gæti líka líkað...