Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Toy Story (1995-2026)
Margir hafa mögulega gleymt því en heimurinn fór nánast á hliðina þegar fyrsta Leikfangasaga Pixar-stúdíósins var gefin út. Þetta var fyrsta tölvugerða teiknimyndin í fullri lengd þar sem sköpunarteymið lagði það að markmiði að gera hálfgerða 'anti-Disney mynd'. Sem betur fer stóðu gæðin undir vinsældunum, því seinna meir urðu Toy Story myndirnar enn vinsælli og að margra mati betri eftir því sem á leið. Til að ræða hæðir og umdeildu lægðir Toy Story seríunnar fengu Kjartan og Tommi hina massakláru og ávallt skemmtilegu Siggu Clausen til að róta aðeins með þeim í dótakassanum. Allar fimm myndir syrpunnar eru ræddar (að ógleymdum stuttmyndunum) og ólíku tengingar hvers og eins í stúdíóinu við ævintýri Vidda, Bósa, Dísu og félaga. Þetta þýðir bara eitt; það er kominn leiktími! Efnisyfirlit 00:00 - ”Marvel Rouge" 09:12 - Toy Story 38:10 - Toy Story 2 51:28 - Toy Story 3 01:07:53 - Toy Story 4 01:15:43 - Toy Story Toons 01:22:16 - Toy Story 5

Topp 10: Elín Ósk
Hversu oft hefur þú séð The Mummy frá 1999? Hvað með Titanic? Léstu nokkuð Little Women frá 2019 fram hjá þér fara? Hefurðu kynnt þér leikstjóraútgáfuna af Midsommar? Eða júmbóútgáfuna af Kill Bill? Þessar kvikmyndir og fleiri eru allar í miklu uppáhaldi hjá topplistagesti Bíófíkla að sinni, en það er Elín Ósk Jóhannsdóttir sem hefur verið áberandi með innslög sín á TikTok síðustu misseri. Elín er svo sannarlega sjónvarps- og bíófíkill og þar af leiðandi meira en velkomin við gestamækinn í Podcaststöðinni. Hún leiðir Kjartan og Tomma í gegnum úttekt sína á titlum sem hafa verið í gríðarlegum metum hjá henni. Fjölbreytnin er borðliggjandi og við fögnum að sjálfsögðu fjölbreytileikanum. Elín fær orðið, og sviðið. Efnisyfirlit: 00:00 - Elín Ósk á TikTok 08:49 - Pride and Prejudice 13:30 - Titanic 23:32 - The Dark Knight 30:54 - Tangled 34:06 - Arrival 37:32 - The Mummy 45:32 - Midsommar 53:24 - American Psycho 01:01:38 - Little Women 01:10:09 - Kill Bill (vol. 1...)

Spurt og spilað: Stóra MCU prófið
Nú skal kanna þekkingu tveggja ólíkra bíófíkla á sarpinum úr hinu svonefnda Marvel Cinematic Universe. Kveikiþráðurinn að þessum spurningaleik kom þegar Kjartan skoraði á Dag Lárusson, sjálfskipaðan MCU sérfræðing, og þá ákvað Tommi að hlaða í eitt heljarinnar próf, ef svo má kalla það, með dómnefndaraðstoð frá Atla Frey. Kjartan og Dagur Lár settu sér í stellingar þar sem heili og hugvit þeirra beggja var grillað með alls konar spurningum um einn vinsælasta kvikmyndaheim síðari ára, enda vægast sagt úr nægu að taka. Aðeins einn getur komið út úr þessu sem sigurvegari og þá með betri innistæðu fyrir því að sverja sig í hóp helstu MCU-sérfræðinga landsins. Haldið ykkur fast, hér er það Dagur Lár vs. Kjartan... Efnisyfirlit: 00:00 - TikTok og áskorun 06:02 - Hvor svarar fyrst? - MCU sagan 16:21 - Einn í einu - Staðreyndir 32:41 - Kvikmyndagerð og leikarar 44:52 - MCU þættir 56:03 - Niðurstaða og Doomsday

Disclosure Day (2026)
Steven Spielberg og geimverur. Er það ekki býsna sígild og (oftast) skotheld blanda? Er einn þekktasti leikstjóri okkar kynslóða kannski farinn að reiða eingöngu á gömul trix eða er nóg eftir í tankinum? Til að viðra þessi svör og almennt skoðanir á mysteríunni Disclosure Day hafa Kjartan og Tommi snúið aftur bökum saman við þau Ragnar og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn. Að þessu sinni eru bíófíklar ekki staddir í Podcaststöðinni við þessar upptökur, heldur í sérstöku ‘gettó stúdíói’ Video rekkans. Um er að ræða svokallaðan collab-þátt þar sem nóg af gúrme umræðum eru á boðstólnum ásamt einkennilega fríkuðum haug af skemmtilegum útúrdúrum. Og að sjálfsögðu afhjúpunum - á persónulegri nótunum. Veisla þessi hefst með einum litlum Play-takka! Efnisyfirlit: 00:00 - Afhjúpanir við borðið 07:04 - Raunveruleikasjónvarpsflipp 20:44 - Rant um útileigur 31:37 - Bíósalir landsins 40:29 - Obsession-pælingar 56:46 - Stebbi Spilaborg 01:01:42 - D-Day, án spilla 01:16:48 - "Spoiler-tími!" 01:35:02 - Stóra afhjúpunin

Scary Movie (2026)
Margt hefur breyst síðan Scary Movie leit fyrst dagsins ljós fyrir 26 árum, bæði út frá þróun hryllingsmynda og í hversdagsheiminum almennt. Serían hefur flakkað á milli alls konar ólíkra húmorista og lagðist í góðan dvala eftir misheppnuðu fimmtu myndina frá árinu 2013. Nú eru Wayans-bræður mættir aftur ásamt fleirum úr gamla teyminu, með það að markmiði að hrista duglega í smekklegheitum, velsæmismörkum og hryllingsmyndaformúlum. Hvort húmorinn allur gangi upp er algjört smekksatriði. En smekksatriði sem er þess virði að greina. Kjartan, Tommi og Atli Freyr ræddu þessa sjöttu mynd með góðvini hlaðvarpsins, Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Hingað til hefur Arnór ekki leynt ást sína á fyrri myndum seríunnar og fór hann bjartsýnn á þá nýjustu. Til að koma beint að efninu er öruggt að segja að skoðanir bíófíkla og gests séu misjafnar á endurkomu Wayans-bræðra í þessa syrpu. Er þetta kannski bara mynd þar sem best er að slökkva á heilanum til að geta öskurhlegið yfir ruglinu eins og óður bavíani? Eru brandararnir mögulega orðnir þreyttir og örvæntingafullir? Hversu mikið er að marka fáeina spretti sem ganga upp? Svörin fást öll í kostulegu hlustuninni, og eldmóði Arnórs. Efnisyfirlit: 00:00 - Scary Movie 1-5 14:28 - Scary MoVIe 20:55 - Keimlíkir djókar 28:54 - Árshátíðarmynd 36:37 - 'Virkir í athugasemdum' 44:09 - Endurtekningar á teygðum lopa 50:43 - Bingó í salnum 59:19 - Samantekt

Obsession (2026)
Gættu hvers þú óskar þér. Í tilfelli litlu 'stórmyndarinnar' Obsession hefði leikstjórinn og YouTuber'inn Curry Barker ekki mögulega getað óskað sér betri útkomu hvað aðsóknina varðar. Þessi mynd hefur verið að vekja gríðarlega athygli um allan heim og árangurinn er þeim mun magnaðri í ljósi þess að myndin er sögð hafa kostað undir milljón dollara. Þar af leiðandi má tvímælalaust gera ráð fyrir að Barker sé kvikmyndagerðarmaður sem kominn er til að vera og ekki síður leikkonan Inde Navarette, sem er hreint út sagt meiriháttar í hlutverki sínu. Íris, Kjartan, Tommi og Atli Freyr kryfja atburðarás þessarar stórvinsælu indí-myndar eftir bestu getu, þar sem ólíkur bakgrunnur hvers og eins við mækinn spilar einhverja rullu í túlkunum. Obsession er kannski ekkert sérlega djúp bíómynd en það breytir því ekki að um margt er að ræða í tengslum við skilaboð hennar, persónusköpun og þemu. Er hægt að óska eftir meiru? Efnisyfirlit: 00:00 - Sumarbíó og Backrooms 11:06 - Obsession, án spilla 21:05 - Bróðir eða ekki bróðir 36:44 - Spillarnir krauma... 43:25 - Alvöru Nikki/"Djöfla-Nikki" 54:03 - Flótti undan ábyrgð 01:08:05 - Jákvæðar breytingar 01:14:11 - Samantekt

Topp 5: Coen-bræður
Joel og Ethan Coen eru tvímælalaust prakkaralegt tvíeyki sem leynt hefur margt frumlegt og fjölbreytt í gegnum áraraðirnar. Þetta eru kvikmyndagerðarmenn sem hafa einstaka hæfileika þegar kemur að farsakenndum glæpasögum, misskilningum, hálfvitum, afbyggingum formúla og mörgu, mörgu öðru. Fastagesturinn Atli Sigurjónsson kveðst vera mikill aðdáendi Coen-bræðra og hvatti Bíófíkla til að hlaða í áskorun þar sem framúrskarandi myndir dúósins eru fyrir valinu. Jafnframt er reynt að komast til botns á því hvað einkennir frábæra ‘Coen-bræðra mynd’ og hvers vegna sérviska þeirra hittir mismikið í mark hjá almenningi. Hlustandi kær er hvattur til að hlera þennan fróðlega fíflagang með líflegri innsýn í hugarheim tveggja virtra furðufugla. Efnisyfirlit: 00:00 -Einkenni eða mynstur 06:51 - *Hvað* er Coen-mynd? 18:36 - The Big Lebowski 28:00 - Barton Fink 33;10 - Burn After Reading 38:03 - Miller’s Crossing 44:51 - O Brother, Where Art Thou? 49:38 - A Serious Man 53:49 - No Country for Old Men 01:02:26 - The Man Who Wasn’t There 01:11:26 - Fargo 01:20:44 - Raising Arizona

Star Wars: The Last Jedi vs. The Rise of Skywalker
Star Wars hefur í áratugaraðir reynst sumum mikill gleðigjafi en hafsjór af triggerum fyrir aðra hópa. Þetta þykir furðu áhugavert í ljósi þess hversu títt þessar bíómyndir predika uppbyggjandi móral og stuðla að von, sameiningu og bjartsýni gegn myrkari mynstrum. Mætti jafnvel færa rök fyrir að Star Wars ‘aðdáendur’ séu á meðal reiðustu hópa veraldarvefsins, kaldhæðnislega. Kjartan, Tommi og gestur þeirra, Einar Michaelsson, ræða tvær umdeildustu ‘Disney Star Wars’ myndirnar í seríunni; almennt umtal þeirra, legasíu á meðal aðdáenda/markhópsins, sitthvora kosti þeirra og galla. Tilangur umræðunnar er að komast aðeins til botns á því hvers vegna svona mikið úlfúð hefur fylgt þessum tilteknu myndum og hvað þær segja í sameiningu um svokallaða Sequel-þríleikinn sem hófst með aðsóknarsprengjunni The Force Awakens. Þá skal bara kveikja á geislasverðunum og kanna hvað liggur á bak við nöldrið sem oft hefur einkennt Star Wars vörumerkið, og um leið hlusta hvort nákvæmlega sú krufning leiði til (en ekki hvað…) nöldurs! Efnisyfirlit: 00:00 - Hver er Rey? 05:57 - Upprunalega Star Wars 16:36 - Hvað vilja aðdáendur? 25:58 - Karakterdýnamík í klessu 36:24 - Nostalgíubeiturnar 41:48 - “Strákafantasía” 50:15 - Er sjarminn farinn? 01:02:11 - Gæðamunur á myndum 01:16:55 - Samleikur við dauða manneskju 01:19:33 - Fúli Ford

The Mandalorian and Grogu (2026)
Það hlaut að koma að því. Eitt vinsælasta tvíeyki síðustu ára úr Stjörnustríðsheiminum fékk að skjótast upp á hvíta tjaldið. The Mandalorian and Grogu er fyrsta Star Wars bíómyndin í sjö ár og má lengi spyrja sig hvort um ræði fagnaðarerindi fyrir aðdáendur eða merki um ákveðin vonbrigði. Þá er einnig kjörið að kanna hvort hægt sé að njóta þessarar myndar án þess að hafa horft á sjónvarpsþættina, eða aðrar Star Wars myndir ef út í það er farið. Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er sestur í stúdóið hjá þeim Kjartani og Tomma þar sem mikilvægu nördamálin eru í brennidepli. Af stærra umræðumenginu að dæma er að minnsta kosti ljóst að skoðanir gætu skipst í ólíkar áttir. Ætli Einar sé á því að Jon Favreau (ásamt Dave Filoni) hafi dúndrað út algjörri neglu fyrir MandoGrogu unnendur? Hvaða kröfur gerði Kjartan til myndarinnar ? Er þetta leiðin, eða bara leiðinlegt? Betra er að halda hjálminum áföstum, því leiðin að uppgjörinu gæti orðið snúin - þó fjörið vanti ekki. Efnisyfirlit: 00:00 - Íslendingar í The Odyssey 07:05 - Einar á fullu 12:38 - Star Wars tilvistarkreppan 22:23 - ‘Fan edits’ 26:55 - MandoGrogu, án spilla 42:44 - Spillingar! 48:59 - Tónninn hjá Favreau 01:01:04 - Samantekt

Dick Tracy (1990)
Warren Beatty og litríka draumaverkefni hans frá árinu 1990 er ein djöfulsins skrípó-steypa, en með merkilega sögu að baki og síðan hún kom út. Dick Tracy var gefin út skömmu eftir stórvinsældir fyrstu Batman myndarinnar frá Tim Burton og býr yfir (næstum því…) samskonar fíling. Tommi er sestur niður með Ötlum tveimur, sum sé Atla Frey og Atla Sigurjóns þar sem saga ræmunnar, stjarna, efnistök, leikarasúpa, litaþemu, Óskarstilnefningar, aðsókn og allt tilheyrandi er tekið til ítarlegrar skoðunar. Skellið ykkur í skærgulu frakkanna og upp með Tomma-byssurnar… Þetta verður ruglað! Efnisyfirlit: 00:00 - Litir og leikarar 12:10 - "Dirty Harry týpa" 24:18 - Óskarsmynd (?!) 30:31 - Fullorðinsleg krakkamynd... 38:27 - Markaðssetningin 45:19 - Meira um Warren... 52:40 - Tracy Zooms in... 56:00 - Fleira stílíserað 'noir'... 01:00:06 - Disney/Touchstone