Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

#335 2025 með Ásgeiri Kolbeins
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira. 00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:14 - Intro 00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf 03:19 - Avatar: Fire and Ash 23:20 - Var árið gott? 32:42 - One Battle After Another 51:03 - Sinners 1:10:07 - Weapons 1:30:35 - Jurassic World: Rebirth 1:37:51 - Marvel myndir ársins 1:57:50 - Ballerina og Nobody 2 2:24:19 - Grínmyndir ársins 2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning 2:55:35 - F1 2:58:36 - Superman 3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth

#334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni
Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar. Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár! 00:10 - Intro 00:25 - Jólaþátturinn í ár! 00:48 - Er Die Hard jólamynd? 03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir! 04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur 14:48 - Atriði 30:22 - Almennar spurningar 41:48 - Plakatleikur 52:45 - Rétt eða rangt 1:02:19 - Persónur og leikarar 1:19:38 - Valmöguleikar 1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur) 1:57:29 - Sigurvegarar krýndir

#333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat
Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.

#332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni
Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey. Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin 07:10 - Best of the Best 11:40 - Plakatleikur 31:31 - Almennar spurningar 42:11 - Persóna og leikari 55:01 - Rétt eða rangt 1:02:25 - Atriði 1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix) 1:35:58 - Sigurvegarar krýndir

#331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael
Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir! 01:58 - Ísrael og Kilo 03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti) 10:40 - Almennar spurningar 16:00 - Plakatleikur 25:19 - Rétt eða rangt 38:09 - Atriði 50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain 59:17 - Persónur og leikarar 1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir) 1:36:40 - Sigurvegarar krýndir

#330 Nördaspjall með John Inga Matta
John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar. John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels. Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd. Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Samanburður á ólíkum myndum 09:16 - Hver er John Ingi? 16:17 - Íslenski bransinn 24:55 - Hryllingsmyndir 48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood 51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film 1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir 1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat 1:29:10 - John Wick og Ballerina 1:35:05 - Weapons og Sinners 1:51:04 - One Battle After Another 2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix 2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix 2:58:59 - Marvel 3:12:14 - DC 3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind

#329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull
Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu. Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni! Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal annars atriði úr myndum, scream queens, alls konar plaköt og almennar spurningar. 00:00 - Intro 00:15 - Pétur og Jökull hittust fyrir utan podcastið 10:17 - Atriði 22:00 - Plakatleikur 28:23 - Almennar spurningar 36:39 - Scream queens 46:54 - Rétt eða rangt 56:01 - Flokkar (Draugagangur, Beittar tennur, Blóðug slóð, Óþekk börn) 1:13:16 - Sigurvegari krýndur 1:17:29 - Hrekkjavöku meðmæli

#328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael
Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni. Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum. Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurfa að giska á úr hvaða mynd ramminn er og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 01:37 - Bíóblaður spurningaspil kemur út fyrir jól! 03:07 - Kilo og Ísrael 12:35 - Plakatleikur 25:41 - Valmöguleikar 46:39 - IMDB leikur 56:42 - Atriði 1:12:02 - Flokkar (1999, Tom Cruise, Julia Roberts, 1989) 1:22:00 - Sigurvegari krýndur 1:25:12 - Kilo og Ísrael team up?

#327 Dahmer með Kiddu Svarfdal
Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona menn og margt, margt fleira.

#326 Bransaspjall með Ólöfu Birnu
Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024. Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir. Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Bíóblaður spurningaspil 02:01 - Handrit skipta máli 15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I. 25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita 38:46 - Sjónvarpsþættir 45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn 59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla 1:09:35 - Topp 10 möst 1:14:41 - Kvikmyndasjóður 1:28:20 - Genre myndir á Íslandi 1:30:36 - Topp 10 möst 1:50:16 - Grín er ekki að selja 2:06:57 - Kvikmyndasjóður 2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð