Áhugavaldar

AnnaKrissa og Ari Björn

Þættir

Sperrtu eyrun, því systkinin Anna og Ari eru mættust hingað með áhugaverðasta hlaðvarp Íslands lóðbeint til þín. Nýir þættir á þriðjudögum.

15.  ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ!!

15. ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ!!

17jún

HÆ HÓ OG JIBBÝ JEI! ÁFRAM ÍSLAND!! WOOHOOOOO! ÍSLAND ER BEST Í HEIMI!! BÆ DANMÖRK ÁFRAM ÍSLAND! RAMMÍSLENSKASTI ÞÁTTUR ÍSLANDS. FARÐU NORÐUR OG NIÐUR OG ÞAÐAN Í VERRI STAÐ DANMÖRK! ÁFRAM ÍSLAND!!

14. SkýrAri Mynd af Ara

14. SkýrAri Mynd af Ara

16jún

Ari er grínAri, trommAri, frábær leikAri, algjör töffAri, góður teiknAri, geggjaður söngvAri og tónlistarskapAri, góður söguskrifAri og lesAri og bæði sterkAri, vitrAri, hressAri, nettAri og klárAri en Anna. Í þætti vikunnar fáum við skýrAri mynd af Ara með handahófskenndAri og flottAri spurningum heldur en eðlilegt væri að spurja. FyndnAri og heitAri þátt er erfitt að finna.

13. Spurningar, Spurningar, og Fleiri...Spurningar?

13. Spurningar, Spurningar, og Fleiri...Spurningar?

9jún

Áhugavaldarnir kafa djúpt ofan í heilann á Önnu. Hvort myndir þú? Spurningar um tilveruna, og margt annað áhugavert ™ í þessum fróðlega þætti.

12. Funheitar Frásagnir Fólksins

12. Funheitar Frásagnir Fólksins

2jún

Við spurðum, þið svöruðuð. Dónalegir viðskiptavinir, MJÖG furðulegar uppákomur, játningar og svo miklu meira í þessum funheita þætti. Anna les fyrir Ara sögurnar sem þið senduð inn og það má segja að þær eru svakalegar. Spennið beltin og náið ykkur í popp. Tímastimplar;  0:00 Vitleysisgangur og Yapperville 15:04 Áhugaverðar Staðreyndir  22:10 Umræðuefni Þáttarins 29:40 TW emetophobia /ælufóbía 32:40 ælufóbíusaga búin auka TW: kynferðisleg áreitni, andleg erfiði, og fleira þess háttar.

11. Buzz Buzz.., og Svaraðu Nú!

11. Buzz Buzz.., og Svaraðu Nú!

26maí

Hvort myndir þú frekar, og kanntu gen alpha tungumál? er meðal þeirra prófa sem Ari leggur fyrir Önnu í þessum þætti áhugavaldanna. Það eru stóru spurningarnar í dag!

10. Heimsmet á (Skrítnum) Heimsmælikvarða

10. Heimsmet á (Skrítnum) Heimsmælikvarða

19maí

Lengstu neglurnar, háværasta ropið, o.fl. Vonandi býður ykkur ekki eins mikið við og honum Ara. Enda fór Anna með ótrúlegustu heimsmet sem hún gat fundið í þessum bráðfyndna þætti hjá áhugavöldunum.

9. Er Ekki Kominn Tími til að Pústa?

9. Er Ekki Kominn Tími til að Pústa?

12maí

Það lendir enginn í svona hjá tannlækninum nema Anna... það verður sko sannarlega pústað úr öllum áttum í þessum þætti! Þú vilt sko alls ekki missa af því.

ATH tilkynning!

ATH tilkynning!

14apr

smá skilaboð frá okkur<3 12. maí!! ok Loveyou bæj á meðan

8. Seinustu Tvær Heilasellurnar

8. Seinustu Tvær Heilasellurnar

7apr

Í þætti vikunnar förum við í nokkra áhugaverða tveggja manna leiki. Afslappað, fyndið og út um allt, bara eins og við!

7. Snúast Páskarnir um Jesú?

7. Snúast Páskarnir um Jesú?

31mar

Málshættir, trúarbrögð, pólitík, o.fl. Páskarnir eru tíminn þar sem maður borðar yfir sig af súkkulaði (Og rífst kannski smá við ættingja um stjórnmál og samfélagið). Halda samt allir eins upp á páskana? Og hvað þýða þessir djös...Ég meina, forvitnilegu málshættir eiginlega?

Þér gæti líka líkað...